Þrír hafa látist í hákarlaárásum í Ástralíu það sem af er ári.EPA / SITTHIXAY DITTHAVONGHákarl varð manni að bana undan ströndum Vestur-Ástralíu í dag. Fjórir hafa látist í hákarlaárásum það sem af er árinu. Aðeins tvær vikur eru frá þeirri síðustu. Að sögn lögreglu var maðurinn við skutulsveiðar þegar hákarlinn réðst á hann.Ástralskir vísindamenn telja að flökkumynstur hákarla sé að breytast, ekki síst vegna hækkandi sjávarhita. Það kunni að skýra aukna tíðni hákarlaárása.Búið er að uppfæra fréttina og fyrirsögn.