Ræstingafélagið Nostra hefur ítrekað brotið gegn kjarasamningum segir varaformaður verkalýðsfélagsins Hlífar. Forsvarsmenn Nostru vísa ásökunum verkalýðsfélagsins á bug.Verkalýðsfélaginu Hlíf hafa borist um þrjátíu launakröfur og fjórtán kröfur vegna ógreidds orlofs frá félagsfólki sem starfar fyrir ræstingarfyrirtækið Nostru í Hafnarfirði. Kröfurnar snúa meðal annars að seinagangi í launagreiðslum og röngum launaútreikningi segir Gundega Jánlinina Jaunlinina, varaformaður Hlífar. Hún segir ræstingafyrirtækið hvorki fara eftir kjarasamningum né almennum reglum á vinnumarkaði.„Við höfum fengið þó nokkuð margar kvartanir um að launin komi seint, þá erum við að tala frá fyrsta til fimmta og stundum áttunda hvers mánaðar sem launin eru greidd. Þetta hefur gerst alveg þó nokkuð mörgum sinnum.“G