Barnafjölskyldurn sem á að vísa úr landi, verða vistaðar í sérstöku húsnæði og þurfa ekki að deila rými með öðrum samkvæmt breytingartillögu meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar við frumvarp um brottfararstöð. Formaður nefndarinnar gerir ráð fyrir að frumvarpið fari í lokaatkvæðagreiðslu í næstu viku. LEGGJA TIL ÞRJÁR BREYTINGAR Á FRUMVARPI UM BROTTFARARSTÖÐ Allsherjar- og menntamálanefnd skilaði frá sér nefndaráliti í gær þar sem þrjár breytingar á frumvarpi um brottfarastöð eru lagðar til. Tillögurnar taka mið af gagnrýni á vistun barnafjölskyldna í brottfararstöðvum.Víðir Reynisson, formaður nefndarinnar, segir breytingarnar skerpa á mikilvægi þess að barnafjölskyldur séu ekki vistaðar á brottfararstöðinni sjálfri.„Heldur á öðrum stað þar sem hver fjölskylda getur verið algjör