Jón Þór Þorvaldsson formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna segir ekkert að gerast í kjaradeilunni við Icelandair um helgina í svari við fyrirspurn fréttastofu. Ríkissáttasemjari á ekki von á að heyra í flugmönnum um helgina. Flugfélagið lagði fram tillögur í kjaradeilunni í fyrrakvöld, 4. júní. Boltinn er því hjá flugmönnum. Meðal annars er tekist á um hvíldartíma og vinnufyrirkomulag en einnig svokallaða blautleigusamninga. Þeir fela í sér að flugfélag fær erlent flugfélag til að fljúga fyrir sig. Icelandair vill fá heimild til að gera slíka samninga. Vélin sem Icelandair er með á leigu núna tengist ekki deilunni.Deilan er snúin. Frá vinstri Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA, Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari og Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair.RÚV/Samsett mynd / Ragnar Visag