Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að styrkja úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg vegna almyrkvans 12. ágúst. Aðgerðunum er meðal annars ætlað að stuðla að auknu öryggi, styðja við viðbúnað og draga úr líkum á alvarlegum truflunum í farnetstþjónustu.Fram kemur í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins að búist sé við miklum fjölda fólks á þeim stöðum þar sem almyrkvi á sólu verður mestur og varir lengst. Staðan við Látrabjarg sé sérlega viðkvæm þar sem fyrirhuguð uppbygging fjarskiptainnviða hafi tafist. Þar sé því þörf á umfangsmeiri og kostnaðarsamari úrbótum.Stjórnarráð Íslands