Álit og breytingartillögur meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar um frumvarp um brottfararstöð voru birt í gærkvöld. Þar er lögð til breyting um aðskildar vistarverur fyrir fjölskyldur með börn.Meirihluti nefndarinnar leggur til breytingu sem fulltrúar Sjálfstæðisflokks í 1. minnihluta höfðu áður lagt fram; að hver fjölskylda með börn hafi eigið afmarkað rými með að lágmarki svefnaðstöðu, tómstundasvæði innan- og utandyra, auk salernis- og eldunaraðstöðu. Orðalag í breytingartillögunni er sótt í álit fulltrúa Sjálfstæðisflokks í nefndinni.Annarri umræðu um frumvarpið lauk á þingi í vikunni. Stefnt er að því að afgreiða frumvarpið fyrir sumarfrí. BREYTINGAR Á TVEIMUR GREINUM OG NÝTT ÁKVÆÐI LAGT TIL Í nefndaráliti frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar eru lagðar til þrjár