Harðnandi samkeppni um raforku
Vegna mikillar eftirspurnar eftir raforku er fyrirséð að einhverjir raforkukaupendur muni á næstu þremur árum ekki fá þá orku sem þeir höfðu reiknað með. Samkeppni um orku harðnar og Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að tryggja verði heimilum og smærri fyrirtækjum forgang.Farið var yfir stöðu og horfur í orkumálum á haustfundi Landsvirkjunar í gærmorgun. Á Íslandi eykst raforkunotkun um fimm til tíu megavött á ári, eingöngu vegna hagvaxtar. Þá hafa kaup stærri notenda verið að aukast.„Þannig að það er fyrirsjáanlegt að á árunum, 2024, 2025 og 2026 að þá séu einhverjir notendur, raforkunotendur, ekki að fá þá orku sem þeir gerðu ráð fyrir. Sem er ákveðin tegund af orkuskorti,“ segir Hörður. STJÓRNVÖLD TRYGGI HEIMILUM RAFORKU Hörður segir að til að vinda ofan af þessu þurfi