Það má kannski segja að olíuauðlindir Nígeríu séu bæði böl og blessun íbúa. Landið er einn stærsti olíuframleiðandi Afríku og olía stór hluti af útflutningstekjum.Alþjóðleg olíufyrirtæki, á borð við Shell, hafa starfað lengi í landinu og hafa í gegnum tíðina sætt gagnrýni meðal annars vegna umhverfisspjalla.Olíuþjófnaður hefur lengi verið vandamál. Glæpagengi hafa tengt sig við olíuleiðslur og dæla hráolíu í báta eða geymslutanka.Hluti stolnu olíunnar er hreinsaður í bráðabirgðabúðum sem eru faldar í árkvíslunum en afgangurinn er seldur ólöglega.Nígerísk stjórnvöld telja að hundruð þúsunda tunna af olíu tapist daglega vegna olíuþjófnaðar og skemmdarverka.Fjallað var um málið í Speglinum á Rás 1. ÍBÚAR HÖFÐA MÁL GEGN SHELL VEGNA SKAÐLEGRA ÁHRIFA Íbúar við árkvíslir og leiruviðarskóga lan