Efni unnið úr köngulóarsilki gæti í framtíðinni komið í stað nælons í veiðarfærum. Með því væri hægt að sporna við áframhaldandi umhverfisspjöllum sem verða vegna drauganeta og annarra veiðarfæra sem líða um hafið og halda áfram að klófesta sjávardýr.