Særðist alvarlega eftir árás hákarls

Þrír hafa látist í hákarlaárásum í Ástralíu það sem af er ári.EPA / SITTHIXAY DITTHAVONGKafari særðist alvarlega eftir árás hákarls undan ströndum Vestur-Ástralíu í morgun.Aðeins tvær vikur eru síðan maður lést eftir árás hákarls í norðurhluta landsins. Þrír hafa látist þar í landi í hákarlaárásum það sem af er ári.Ástralskir vísindamenn telja að flökkumynstur hákarla sé að breytast, ekki síst vegna hækkandi sjávarhita. Það kunni að skýra aukna tíðni hákarlaárása.
Særðist alvarlega eftir árás hákarls

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd