Reykjavíkurborg vistaði tólf börn í Bakkakoti eftir að ofbeldi hafði verið tilkynnt

Barnaverndarnefnd Reykjavíkur vistaði þrettán börn á fósturheimilinu Bakkakoti á árunum 2002 til 2005. Á þessum tíma var búið að greina frá því við barnaverndaryfirvöld að ofbeldi hefði tíðkast á fósturheimilinu. Barnaverndarstofa mælti ekki með því að börn yrðu áfram vistuð þar og einhver sveitarfélög höfðu hætt því. Samt gerði Reykjavíkurborg það áfram en ekki liggur fyrir af hverju. Þetta kemur fram í svörum frá Reykjavíkurborg við spurningum fréttastofu.Hluta tímabilsins 2002 til 2005 voru börn vistuð í Bakkakoti í trássi við lög, líkt og greint var frá í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í vikunni. Ástæðan var sú að Bakkakot hafði ekki leyfi til að taka á móti börnum í vist frá því árið 2004, þegar ný barnaverndarlög voru lögfest, og þar til árið 2005 þegar félagsþjónustan í Rangárva
Reykjavíkurborg vistaði tólf börn í Bakkakoti eftir að ofbeldi hafði verið tilkynnt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd