Leó XIV páfi heldur til Spánar í dag. Í vikulangri heimsókn sinni hyggst páfi leggja áherslu á innflytjendamál og samfélagslegt réttlæti.Fyrst á dagskrá páfa er heimsókn til Filippusar VI Spánarkonungs og Letiziu Spánardrottningar í konungshöllina í höfuðborginni Madríd.Síðar í dag leiðir páfi bænahald nærri Santiago Bernabeu-leikvanginum. Búist er við um 400 þúsund gestum. Á morgun er gert ráð fyrir að um milljón manns sæki guðsþjónustu páfa í miðborg Madrídar.Leó mun einnig halda ræðu á spænska þinginu og blessa nýja turna Sagrada Familia-kirkjunnar í Barcelona. RÆÐIR VIÐ FÓRNARLÖMB KIRKJUNNAR Til stendur að páfi ræði við fórnarlömb kynferðisofbeldis presta kaþólsku kirkjunnar á Spáni. Talið er að frá árinu 1940 hafi um 200 þúsund börn verið beitt kynferðisofbeldi af hálfu presta á Sp