Íransher skaut í nótt sjö flugskeytum í átt að skotmörkum í Kúveit og Barein. Örfáum klukkutímum fyrr skaut Bandaríkjaher niður fjóra árásardróna Írana.Í tilkynningu frá stjórnstöð Bandaríkjahers segir að sex af flugskeytunum sjö hafi verið skotin niður og að hið sjöunda hafi ekki náð skotmarki sínu. „Okkur hafa ekki borist neinar tilkynningar um að bandarískir hermenn hafi særst,“ segir í tilkynningunni.Fréttamenn AFP-fréttaveitunnar greina frá því að sprengingar hafi heyrst í Kúveit og Barein, meðal annars í grennd við alþjóðaflugvöllinn í Kúveit.Íranskir ríkismiðlar hafa eftir íranska byltingarverðinum að árás á flotastöð bandaríska hersins í Barein hafi heppnast. Þeim fullyrðingum vísar stjórnstöð Bandaríkjahers á bug.Herir Írans og Bandaríkjanna hafa reglulega skipst á árásum að undan