Landbúnaðarstofnun Bandaríkjanna hefur á síðustu tveimur dögum greint tvö tilfelli hættulegrar maðkaflugu. Flugnategundin verpir eggjum sínum í sár eða í slímhúð dýra og lirfan nærist svo á holdi þeirra. Sé ekki brugðist hratt við getur ásókn tegundarinnar reynst dýrunum banvæn og hún dreift hratt úr sér. Svokölluð nýjaheimsmaðkafluga fannst í kálfi í suðurhluta Texas í gær, í aðeins 10 kílómetra fjarlægð frá fyrsta tilfellinu sem fannst í fyrradag.Yfirvöld keppast nú við að hefta útbreiðslu tegundarinnar og búið er að skilgreina einangrunarsvæði í stórum hluta sýslunnar þar sem tegundin fannst. Talið var að tegundin hefði verið upprætt í Bandaríkjunum 1966. Hún gerði þó vart við sig að nýju í Flórída árið 2016 og lagðist þá einkum á dádýr. Skaðvaldinum var útrýmt í Flórída 2017.Þessi nýju