Liðsmenn íranska fótboltalandsliðsins eru komnir með vegabréfsáritun til að ferðast til Bandaríkjanna. Frá þessu greinir Tom Barrack, sendiherra Bandaríkjanna í Tyrklandi.Þetta þýðir að liðið getur keppt á heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst í næstu viku. Fyrsti leikur liðsins á mótinu er gegn Nýja-Sjálandi. Liðin mætast 16. júní í Los Angeles.„Ég er stoltur af vinnu okkar frábæra teymis í sendiráði Bandaríkjanna í Ankara við að afgreiðslu vegabréfsáritana fyrir íranska fótboltalandsliðið sem er á leið á heimsmeistaramótið í Bandaríkjunum,“ ritar Barrack í færslu á samfélagsmiðlinum X. „Íþróttir eru hafnar yfir landamæri og við hlökkum til að taka á móti keppendum og aðdáendum hvaðanæva að úr heiminum.“Þrátt fyrir að allir leikir íranska liðsins í riðlakeppni fari fram í Bandaríkjunum