Áhorf á Eurovision dróst saman á milli ára en 131 milljón manns horfðu á beinu útsendinguna á úrslitunum, samkvæmt nýjum tölum frá Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU.Áhorfendur mældust um 35 milljónum færri en árið áður, en þeir voru 166 árið 2025. Fimm aðildarríki sniðgengu keppnina vegna þátttöku Ísraels. Holland, Ísland, Spánn, Írland og Slóvenía tóku ekki þátt í keppninni í ár og þau þrjú síðarnefndu sýndu auk þess ekki útsendinguna í sjónvarpi.Keppnin var haldin í Vín í Austurríki og lauk með sigri Búlgaríu sem vann í fyrsta skipti í sögu keppninnar með lagið Bangaranga í flutningi söngkonunnar DARA. Ísrael hafnaði í öðru sæti, annað árið í röð.Þrátt fyrir samdrátt í heildaráhorfi segja skipuleggjendur hefðbundið sjónvarpsáhorf áfram sterkt í alþjóðlegum samanburði. Keppnin hafi