Sérsveitin kölluð út á Akureyri

Liðsmenn sérsveitar ríkislögreglustjóra.RÚVSérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðaði við lögregluaðgerð á Akureyri í kvöld. Þetta staðfestir varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í samtali við fréttastofu. Hann vildi ekki veita frekari upplýsingar um eðli lögregluaðgerðarinnar né heldur hvers vegna sérsveitin var kölluð til aðstoðar.Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra, segir í samtali við fréttastofu að liðsmenn sérsveitar séu til taks á Akureyri og að þeir hafi verið kallaðir til aðstoðar í þetta sinn.Mbl.is hefur eftir sjónarvotti að nokkrir lögreglubílar og sérsveitarbílar hafi verið á vettvangi á Strandgötu þar sem ungur maður var handtekinn.
Sérsveitin kölluð út á Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd