„Hvert banaslys er einu of mikið“

Það var mikið um að vera við Reykjavíkurhöfn í dag á æfingu Slysavarnaskóla sjómanna og Landhelgisgæslunnar. Markmiðið var að vekja athygli á öryggi sjómanna. TILGANGURINN AÐ VARPA LJÓSI Á FÆKKUN SJÓSLYSA „Við fórum á æfingu með Slysavarnarskóla sjómanna og æfingin snerist um að fara út og láta bjarga sér um borð í þyrlu,“ segir Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu.„Hluti af hópnum fór í sjóinn, hluti af hópnum fór í gúmmíbjörgunarbát og hluti af hópnum var um borð í skipinu. Þetta er æfing sem er síðasti dagur fimm daga námskeiðs hjá Slysavarnarskólanum og það er frábært að sjá alla þessa ungu krakka sem eru að taka þátt í þessu.“Tilgangurinn með æfingunni er að varpa ljósi á þær kröfur sem gerðar eru til sjómanna hér á landi og þann mikla árangur sem hefur náðst í fækkun sjósly
„Hvert banaslys er einu of mikið“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd