Bankarnir nýta undanþáguheimild Seðlabankans lítið

Lánveitendur nýta undanþáguheimild Seðlabankans vegna fasteignakaupa enn lítið, þrátt fyrir að hún hafi verið tvöfölduð í fyrra. Bankar og lífeyrissjóðir nýta um fimmtung heimildarinnar.Eftir að Hæstiréttur úrskurðaði í október að breytilegir vextir Íslandsbanka á óverðtryggð lán væru ólögmætir skapaðist mikil óvissa á fasteignamarkaði, og stóru bankarnir þrír gerðu allir hlé á lánveitingum, annað hvort að hluta eða alveg.Til að bregðast við ástandinu gerði Seðlabankinn tvær breytingar á reglum um fasteignalán. Annars vegar að hækka hámarks-veðsetningarhlutfall fyrstu kaupenda úr 85 prósentum í 95 prósent. Hins vegar var bönkunum og lífeyrissjóðum gefið aukið svigrúm til að veita lán umfram hámarks-greiðslubyrði.Undanþáguheimildin fór úr fimm prósentum allra veittra fasteignalána upp í tíu
Bankarnir nýta undanþáguheimild Seðlabankans lítið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd