Innviðaráðuneytið hefur ákveðið að styrkja úrbætur á afköstum og útbreiðslu farnetskerfa við Látrabjarg vegna almyrkvans sem verður 12. ágúst. Þetta kemur fram í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu.Á þeim svæðum þar sem almyrkvi á sólu verður mestur, á Reykjanesi, Vesturlandi og Vestfjörðum, er búist við miklum fjölda fólks sem geti skapað álag á farnetskerfi á þessum svæðum. STAÐAN VIÐ LÁTRABJARG VIÐKVÆMARI Farnetsfyrirtækin séu að undirbúa ýmsar ráðstafanir á Snæfellsnesi og Reykjanesi til að mæta auknu álagi vegna sólmyrkvans. Staðan við Látrabjarg, sem er vestasti punktur Íslands, sé þó viðkvæmari þar sem fyrirhuguð uppbygging fjarskiptainnviða á svæðinu hafi tafist. Því sé þörf á umfangsmeiri og kostnaðarsamari úrbótum til að auka afköst og útbreiðslu farnets í tæka tíð.„Nauðsynlegt