Ísland í sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópusambandinu

Betra er fyrir lönd að vera með sæti við borðið heldur en fyrir utan Evrópusambandið, að mati utanríkisráðherra Austurríkis. Hún telur Ísland í sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópusambandinu. MEÐ SÆTI VIÐ BORÐIÐ Beate Meinl-Reisinger, utanríkisráðherra Austurríkis, og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, hittust á fundi í utanríkisráðuneytinu í dag. Þær ræddu meðal annars tvíhliða samband Íslands og Austurríkis, norðurslóðir og innrásarstríðið í Úkraínu. Evrópumálin bar einnig á góma.Meinl-Reisinger segir þjóðirnar tvær ólíkar en eigi samt margt sameiginlegt. Austurríki gekk í Evrópusambandið 1995. Hún segir mikinn mun á því að vera hluti af EES eða í Evrópusambandinu.„Þið eruð með sæti við borðið. Þið tækjuð þátt í að móta þær reglur sem þarf að hlýða. Ég myndi telja afa
Ísland í sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópusambandinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd