Þróa nýja tegund bóluefnis með hjálp gervigreindar

Hópur vísindamanna við Cambridge-háskóla hefur þróað nýja tegund bóluefnis með hjálp gervigreindar. Það er talið geta nýst til varnar fjölda veira og jafnvel komið í veg fyrir faraldra.Í frétt breska ríkisútvarpsins, BBC segir að þróun bóluefnisins sé enn á frumstigi. Það var hannað til að nýtast gegn öllum afbrigðum kórónuveiru, og aðrar veirur sem berast til dýra og gætu valdið faraldri.Ein helsta áskorunin við gerð bóluefna er að veirur geta stökkbreyst og afbrigði þeirra verið fjöldamörg. Hefðbundin bóluefni byggjast á nýlegri gerð veira hverju sinni. Rannsakendur tóku genamengi úr fjölda kórónuveira og létu gervigreind greina þau. Gervigreindin hannaði þá svokallaðan ofur-mótefnavaka sem á að geta þjálfað ónæmiskerfið til að verjast öllum mögulegum veirum í kórónufjölskyldunni – jafnv
Þróa nýja tegund bóluefnis með hjálp gervigreindar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd