Fjörutíu og níu manns létust úr þorsta í Shara-eyðimörkinni í Níger nýlega eftir að trukkur sem þau voru í bilaði. Fólkið hafði dögum saman reynt að laga bílinn. Tveir lifðu af.Fólkið var að koma frá nágrannaríkinu Malí þar sem það hafði tekið þátt í trúarhátíð múslíma. Bíllinn sem hópurinn var í bilaði í eyðimörkinni og allt vatn kláraðist. Aðeins tveir úr hópnum lifðu af, þeir höfðu gengið langa leið til byggða og gátu látið yfirvöld vita af fólkinu. Fjörutíu og níu fórust úr þorsta.Bílstjórinn og farþegarnir reyndu dögum saman að laga bílinn, án árangurs, segir í yfirlýsingu stjórnvalda í Níger. Fólkið var grafið í fjöldagröf í eyðimörkinni.Árum saman hefur verið reynt að vekja fólk til vitundar um hættuna sem felst í ferðalögum yfir eyðimörkina, hefur breska ríkisútvarpið eftir yfirman