Þjóðminjavörður sem sá um uppgröft á beinum Jónasar Hallgrímssonar árið 1946 skrifaði nákvæma skýrslu um verkið. Aðstoðarþjóðskjalavörður segir hann hafa verið vissan í sinni sök um að beinin væru Jónasar, en í grafreitnum voru fjórir að auki.Hópur fólks vill grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar og fá úr því skorið hvort beinin séu raunverulega hans - í tengslum við gerð heimildarmyndar.Skjöl um uppgröft líkamsleifa Jónasar er að finna í skjalasafni forsætisráðuneytisins á Þjóðskjalasafni Íslands. Frá því var greint á Facebook-reikningi Þjóðskjalasafnsins í dag. Jónas var upphaflega jarðsettur í Assistens-kirkjugarði í Kaupmannahöfn en er nú grafinn í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum. LÍKAMSLEIFAR FJÖGURRA ANNARA Í GRAFARREIT JÓNASAR Matthías Þórðarson, þjóðminjavörður, sá um uppgröft á