Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir engan tilgang með því að funda með Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta fyrr en friðarsamningur liggur fyrir. Zelensky bauð honum til viðræðna í opnu bréfi í gær. Þar lagði hann til að þeir myndu hittast bráðlega í hlutlausu landi og stakk upp á Sviss og Tyrklandi.Pútín ávarpaði blaðamenn á alþjóðlegri efnahagsráðstefnu í Sankti Pétursborg í dag og sagði að stríðinu lyki ekki fyrr en Rússar hefðu náð markmiðum sínum. Stjórnvöld í Rússlandi hafa sett fram kröfur um yfirráð yfir austurhluta Úkraínu, um breytingar á valdhöfum í landinu og um takmarkanir á hernaðargetu landsins. Vladimír Pútín, forseti Rússlands.AP / Alexander Kazakov