Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt að lækka laun oddvita og sveitarstjóra frá því sem verið hefur. Árni Eiríksson, sem var oddviti í 45% starfshlutfalli og verður áfram oddviti fær 800.000 krónur á mánuði með lækkuninni, sem er 23.202 krónur á mánuði miðað við launin á síðasta kjörtímabili. Tenging við launavísitölu verður felld niður og launakjör fylgja hækkunum samkvæmt viðkomandi kjarasamningi. Mánaðarleg þóknun nær yfir öll þau störf og vinnuframlag sem oddviti sinnir á vegum sveitarfélagsins, fyrir utan tilfallandi stjórnarsetu í samstarfsverkefnum eða byggðasamlögum sem í sumum tilvikum er greitt fyrir sérstaklega af viðkomandi byggðasamlagi eða samstarfsverkefni. Þetta var samþykkt með 3 atkvæðum. Almar Sigurðsson sat hjá og Árni Eiríksson vék af fundi við afgreiðslu málsins.Á