Í úrskurði nefndar umhverfis- og auðlindamála er litið svo á að Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hafi ekki mátt gefa út starfsleyfi til heitloftsþurrkunar Samherja á Laugum í Þingeyjarsveit. Þetta var endurnýjun starfsleyfis og íbúar á Laugum kærðu veitinguna.Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra starfar eftir samstarfssamningi sveitarfélaga frá 2023. Samningurinn var samþykktur í öllum sveitarfélögunum og hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra. Að mati fulltrúa Heilbrigðiseftirlitsins er það nóg en úrskurðarnefndin er ósammála. Nefndin telur að HNE hefði einnig átt að samþykkja samninginn og auglýsa hann í B-deild Stjórnartíðinda. Hann sé því ekki gildur.„Ég held að það hafi verið skilningur manna á lögunum að það hafi bara verið þessar sérstöku samþykktir sem þyrfti að bi