Rafbyssum aldrei beitt oftar

Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs drógu laganna verðir rafbyssu úr slíðri eða ógnuðu með tækinu í þrjátíu málum og í fimm málum var því beitt. Þetta er mesta notkun rafbyssa á einum ársfjórðungi frá því að þær voru teknar til notkunar en á þriðja ársfjórðungi síðasta árs var rafbyssum beitt næst oftast, eða fjórum sinnum við handtöku.
Rafbyssum aldrei beitt oftar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd