Efni er í stóran jarðskjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu að mati prófessors í jarðeðlisfræði. Um 1.400 jarðskjálftar hafa mælst í skjálftahrinu í Svínahrauni og Svínahraunsbruna nokkrum kílómetrum austnorðaustur af Litlu-Kaffistofunni síðan 31. maí, sá stærsti 4,5 að stærð.