188 ólögráða einstaklingar voru grunaðir í ofbeldismálum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í fyrra og hafa ekki verið fleiri í 18 ár, samkvæmt bráðabirgðatölum. Fjöldi sakborninga í fyrra er tvöfalt meiri en meðaltalið og aukning um 40 frá árinu 2024 og um 70 síðan 2023.Við vekjum athygli á að í umfjölluninni sjást myndbrot þar sem ofbeldi er beitt.Á annað hundrað börn voru grunuð um ofbeldi í fyrra og hafa ekki verið fleiri í tæpa tvo áratugi. Ofbeldi nær til yngri aldurshópa en áður, segir samfélagslögreglumaður sem hefur fengið beiðnir um að fræða allt niður í 10 ára börn.57 voru skráð fyrir fleiri en einu broti í fyrra og fimmtán þeirra voru skráð með fjögur eða fleiri brot það ár.Brotin eru því alls rúmlega 330 þar af eru rúmlega 40 alvarleg, sýnd með appelsínugulum lit. Þetta eru