„Okkur varð það algjörlega skýrar að ríkið stendur þarna að baki ákvörðunum Þórkötlu,“ segir Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, um fund bæjarstjórnar með forsvarsmönnum fasteignafélagsins Þórkötlu.Bæjarstjórnin sakar stjórnvöld um að tefja endurreisn bæjarins. Í gær tilkynnti fasteignafélagið Þórkatla að heimild fyrrverandi eigenda fasteigna, svokallaðra hollvina, til dvalar í húsum sínum yrði takmörkuð við 12 nætur í mánuði. Hvað er hollvinur? Af vef Þórkötlu:Þeir sem selt hafa Þórkötlu hús sín í Grindavík geta gert samning um afnot af húsinu, svokallaðan hollvinasamning.Með því að gera hollvinasamning ákveður “hollvinur” að fá aðgang að húsinu sem Þórkatla hefur keypt af þeim. Hollvinur hefur þá heimild til þess að nota húsið innan þeirra marka sem koma fram í