Sterka og óþægilega lykt frá Colas Íslandi leggur yfir íbúðabyggð í Hafnarfirði. Ólyktina má rekja til fimmtíu þúsund tonna malbiksfarms sem Colas fékk í febrúar.Hörður Þorsteinsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins á höfuðborgarsvæðinu, segir að tugir kvartana hafi borist vegna ólyktar á síðustu fimm árum.„Við skiljum alveg áhyggjur íbúa. Þessi ólykt er óþolandi og í ákveðnum áttum og þegar lygnt er virðist hún liggja yfir hverfið ofan við Suðurhöfnina og íbúar eru mjög ósáttir við það,“ segir Hörður.Eftirlit með malbikunarstöðvum heyrir undir Umhverfisstofnun en ekki heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga. Hörður segir heilbrigðiseftirlitið hafa vakið athygli stofnunarinnar á mikilvægi þess að gripið verði til aðgerða til að stemma stigu við ólyktinni. Þá sé það jafnframt áhyggjuefni