Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu í gær að karlmaður á þrítugsaldri hefði gerst sekur um nauðgun með því að hafa samræði við þrettán ára stúlku. Í héraði var hann sýknaður á þeim forsendum að stúlkan hefði veitt samþykki. Talskona Stígamóta gagnrýnir að barnið hafi ekki fengið niðurstöðu í mál sitt fyrr en rúmum fjórum árum eftir nauðgunina.