Heilsu Mette-Marit, krónprinsessu Noregs, hefur hrakað síðustu sex mánuði og hún er orðin alvarlega veik af lungnasjúkdómi. Hún hefur því verið sett á biðlista eftir lungnaígræðslu.Fram kemur ífrétt NRK, norska ríkisútvarpsins, að lungnaígræðsla sé ein umfangsmesta aðgerð sem einstaklingur getur gengist undir. Þá sé aðgerðin áhættusöm.Krónprinsessan var árið 2018 greind með lungnatrefjun. Læknir hennar sagði við fjölmiðla í morgun að sjúkdómurinn hefði versnað mikið að undanförnu. Sjúkdómurinn væri banvænn og það eina í stöðunni væri að fara í lungnaígræðslu. Þumalputtareglan fyrir ígræðslu sé sú að sjúklingurinn sé svo veikur að ástæða sé til að ætla að hann eigi aðeins eitt ár eftir ólifað. Að sama skapi skuli hann vera nógu heilbrigður til að þola aðgerðina og eiga góðar lífshorfur efti