Sveitarstjóri Stykkishólms segir tilfærslu á ferjunni Baldri til Vestmannaeyja óheppilega, fyrirvarann of stuttan og tilfærslan ekki í samræmi við samkomulag við ríkið. Sveitarfélögin á svæðinu mótmæla ákvörðun innviðaráðherra um að færa ferjuna og sérstaklega því fordæmi sem ákvörðunin kann að skapa.