Ákvörðun stjórnvalda í Búdapest fyrr í þessari viku um að láta af andstöðu Ungverja við að opna aðildarviðræður Evrópusambandsins við Úkraínu og Moldóvu gat varla komið á betri tíma fyrir leiðtoga ESB og aðildarríkjanna.Um þrjátíu þeirra, þar á meðal Emmanuel Macron, Friedrich Merz og Giorgia Meloni, auk Ursulu von der Leyen og Antonio Costa, eru nú að koma saman í strandbænum Tivat í Svartfjallalandi, til að hitta leiðtoga ríkjanna á vesturhluta Balkanskagans; sex þessara ríkja eru umsóknarríki og tvö af þeim, Svartfjallaland og Albanía, eru komin langleiðina í þessu ferli.„Við ætlum að ræða nýjar tillögur sem miða að því að flýta þessu [umsóknar]ferli,“ sagði Costa í viðtali við Euronews í gær. „Það er mikilvægt að auka traust til Evrópusambandsins, og auka trú umsóknarríkjanna á því að