Vara við kræklingatínslu

Eiturþörungar greindust í miklu magni í sjó í Faxaflóa og fyrir sunnan land í vorleiðangri Hafró. Því varar Matvælastofnun almenning við því að tína og borða krækling úr fjörum sunnan- og suðvestanlands, hvort sem er í Hvalfirði eða öðrum vinsælum stöðum til kræklingatínslu.„Tíðafar í maí var tiltölulega gott, sérstaklega suðvestanlands og er ástæða til að ætla að eiturþörungar í sjó dafni víða vel,“ segir í tilkynningu frá MAST.Kræklingur.RÚV/Landinn / Rúnar Ingi Garðarsson
Vara við kræklingatínslu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd