Gervigreindarfyrirtækið Anthropic, sem þróaði líkanið Claude, viðurkenndi fyrir nokkrum vikum að nýjasta útgáfa þess, Mythos, gæti reynst hættuleg. Þessi uppfærsla væri svo öflug að hún fyndi veikleika í tölvukerfum sem hefðu um áratuga skeið farið fram hjá bæði mennskum greinendum og sérhönnuðum hugbúnaði. Ekki væri óhætt að gera Mythos aðgengilegan öllum heldur einungis völdum fyrirtækjum í fyrstu. Þeim var svo fjölgað í þessari viku, um 150 í fimmtán löndum.Á sama tíma sló í brýnu á milli Anthropic og varnarmálaráðuneytisins í Washington því fyrirtækið vildi ekki að Claude væri notaður í stríði, til dæmis til að velja skotmörk. Varnarmálaráðuneytið hefur stefnt Anthropic vegna þessa.Því kemur nokkuð á óvart að fyrirtækið starfar nú með bandarísku þjóðaröryggisstofnuninni NSA við að þróa