Heildarframleiðsluvirði íslensks landbúnaðar árið 2025 er áætlað 100 milljarðar. Það er 7% aukning frá árinu á undan. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Íslands.64% framleiðsluvirðisins kemur frá búfjárrækt en 27% frá ræktun nytjaplantna.Virði nytjaplönturæktunar jókst um 14% milli ára. Það má að mestu rekja til betri uppskeru, þar sem veðurfar sumar og haust 2025 var mun betra en árið áður.Áætlaður kostnaður við aðföng er 68 milljarðar króna, sem er 10% aukning frá fyrra ári.Áætlunin byggir á lokaúttekt fyrir árið 2024 og svo fyrirliggjandi upplýsingum um magn- og verðbreytingar á landbúnaðarvörum árið 2025.