Vill upplýsingar um upplýsingafulltrúa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins hefur krafið dómsmálaráðherra svara hvernig staðið var að ráðningu upplýsingafulltrúa dómsmálaráðuneytisins.Þórdís Valsdóttir gegndi embættinu en gerðist aðstoðarmaður ráðherra þegar Jakob Birgisson hætti. Freyr Gígja Gunnarsson, fréttamaður á Ríkisútvarpinu, var ráðinn í stöðu upplýsingafulltrúa, án auglýsingar.Í fyrirspurn Nönnu Margrétar er spurt á hverju ráðningin byggi og hvort Þórdís snúi aftur í stöðu upplýsingafulltrúa að ári liðnu. Loks er spurt hvort einhverjum vandkvæðum hafi verið bundið að auglýsa stöðuna.RÚV / Kristófer Óli BirkissonÞorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.
Vill upplýsingar um upplýsingafulltrúa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd