Árásargjarn björn í Japan enn laus – Talinn mjög greindur

Umfangsmikil leit stendur yfir í Fukushima í Japan að skógarbirni sem hefur í vikunni ráðist á fólk. Hann hefur sært fjóra, þar af einn alvarlega. Björninn hefur verið skotinn með deyfilyfi en það hafði engin áhrif. Honum tókst að sleppa úr haldi með því að opna sjálfur glugga og hann hefur skrúfað frá krana með loppunum og fengið sér vatn að drekka.Björninn sást á upptöku eftirlitsmyndavélar á miðvikudag ráðast á mann á bílastæði fyrirtækis. Það bjargaði manninum að bílstjóri sá atlöguna og keyrði hratt að og hræddi björninn í burtu. Þá hljóp björninn inn í skrifstofubyggingu og réðst á annan mann og fór eftir það á flótta á ný.Skógarbjörn sem réðist á fjóra í Japan í vikunni er enn laus. Hann opnaði sjálfur glugga og slapp úr haldi og hefur sést skrúfa frá krana til að fá sér vatn að dre
Árásargjarn björn í Japan enn laus – Talinn mjög greindur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd