Fjárhagsáætlun borgarinnar segi það sem segja þarf um viðhorf til fatlaðs fólks

Formaður Öryrkjabandalags Íslands segir borgina ekki sinna lögbundnum skyldum sínum við fatlað fólk. ÖBÍ hefur höfðað mál gegn Reykjavíkurborg fyrir að fjármagna ekki samþykkta NPA-samninga.Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. ÖBÍ telur borgina hafa brotið gegn lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Ekki var gert ráð fyrir fjölgun NPA-samninga í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar þrátt fyrir að 42 samþykktar umsóknir biðu fjármögnunar.„Af einhverjum orsökum þá hefur Reykjavíkurborg ekki gert ráð fyrir því að fylgja þessum lögbundnu skyldum sínum,“ segir Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ. AÐEINS ÞRIÐJUNGUR SVEITARFÉLAGA SVARAÐI KÖNNUN Bandalagið hafi ákveðið að höfða mál gegn borginni í kjölfar könnunar þess á þjónustu við fatlað fólk hjá sveitarf
Fjárhagsáætlun borgarinnar segi það sem segja þarf um viðhorf til fatlaðs fólks

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd