Upprættu ólöglega kakkalakkaræktun með 100 þúsund dýrum

Yfirvöld í Ástralíu upprættu ólöglega kakkalakkaræktun í Nýju Suður-Wales og lögðu hald á 100 þúsund kakkalakka. Sumir hverjir eru á stærð við mannslófa.Verðmæti kakkalakkanna eru talin nema 200 þúsund áströlskum dollurum, eða 17 milljónum íslenskra króna.Kakkalakkarnir eru af tveimur gerðum og eru svokallaðir hvæsandi Madagaskar-kakkalakkar og dubia-kakkalakkar. Báðar tegundir eru ólöglegar í Ástralíu.Dubia-kakkalakkar eru meðal annars notaðir sem fóður fyrir gæludýraeðlur, en tegundin er mjög ágeng og gæti ógnað líffræðilegri fjölbreytni landsins.Kakkalakkarnir verða aflífaðir.
Upprættu ólöglega kakkalakkaræktun með 100 þúsund dýrum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd