Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði af sér þingmennsku í vikunni, en hún hafði nýverið tekið sæti á Alþingi eftir níu mánaða leyfi. Hún á rétt á tæpum tíu milljónum króna í biðlaun eftir afsögnina. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, klökknaði við kveðjuræðu Áslaugar Örnu.