Útlit er fyrir að Repúblikanar geti grætt um tíu þingsæti í fulltrúadeildinni vegna breytinga á kjördæmum fyrir þingkosningarnar vestanhafs í nóvember. Það er að segja, ef allt fer eftir væntingum þeirra en Demókratar þurfa einungis nokkur sæti til að ná meirihluta í fulltrúadeildinni og bæði kannanir og sagan gefa Demókrötum byr undir báða vængi.