Sexlembingar á tveimur bæjum á Austurlandi í vor

Það komu sexlembingar á tveimur bæjum á Austurlandi í vor; Hafranesi við Reyðarfjörð og Klausturseli á Jökuldal. Þetta kom bændum á óvart á báðum bæjum, talið er í ám með ómskoðun snemma vors en næstum ógjörningur að telja sex segja kunnugir.„Ég hélt að ég væri að fara að taka á móti fjórlembingum,“ segir Ásta Lárusdóttir sem tók á móti sexlembingnum á Hafranesi. Hún hefur verið viðloðandi sauðfjárbúskp alla sína tíð en segist ekki hafa átt von á því að eiga það eftir að taka á móti sexlembingum.Fyrstu tvö lömbin komu hjálparlaust, en með hin þurfti aðstoð og Ásta fann þegar hún var að sækja fjórða lambið að þau voru fleiri.Frjósemi hefur aukist töluvert hjá íslensku sauðfé undanfarin ár og er markvisst ræktuð í stofninum. Að minnsta kosti tvö sett af sexlembingum komu í heiminn á Austurla
Sexlembingar á tveimur bæjum á Austurlandi í vor

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd