Hreyfing er komin á kjaraviðræður Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Samningsaðilar hittust í karphúsinu klukkan 19 í gærkvöld. Fundi þeirra lauk á tíunda tímanum.Á fundinum kynnti Icelandair tillögur sem félagið hefur unnið að á síðustu dögum.Vísir hefur eftir Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara að FÍA muni kynna sér tillögurnar á næstu dögum. Hann bindi vonir við að samninganefnd félagsins leggi fram tillögur eða gagntilboð þegar þeirri vinnu er lokið.Ástráður segir að nokkuð sé spunnið í tillögur Icelandair en í samtali við Morgunblaðið lýsir hann þeim sem „konkret“.Hann sagði í samtali við fréttastofu í gær að einkum væri tekist á um hvíldartíma, vinnufyrirkomulag og svokallaða blautleigusamninga. Þeir samningar fela í sér að flugfélag geti fengið annað erlent flu