Bandarísk stjórnvöld kynntu í kvöld nýjar refsiaðgerðir sem beinast gegn kúbönskum stjórnmálamönnum og fjölskyldum þeirra.Meðal þeirra sem aðgerðirnar beinast gegn eru sonur og barnabarn Raul Castro, fyrrverandi forseta landsins. Hann gegnir ekki lengur opinberum embættum en þykir engu að síður afar valdamikill á bak við tjöldin.Refsiaðgerðirnar beinast einnig gegn Miguel Diaz-Canel, forseta Kúbu, og nánustu fjölskyldu hans. VILL AÐ KÚBA SÉ „VEL REKIÐ LAND SEM GETI BRAUÐFÆTT ÍBÚA SÍNA“ Viðskiptabann milli ríkjanna hefur verið í gildi síðan 1962. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þó bætt í að undanförnu. Síðan í janúar hefur olíuinnflutningur til Kúbu stöðvast með tilheyrandi orkukrísu.Stjórnvöld í Washington vilja meina að kommúnistastjórnin á Kúbu ógni öryggi Bandaríkjamanna. Eftir