Telja manninn geta misst stjórn á gervigreind og vilja hægja á þróun

Gervigreindarfyrirtækið Anthropic, sem meðal annars þróar gervigreindarlíkanið Claude, lagði það til í dag að hlé verði gert á þróun gervigreindar.Nýjustu líkön séu farin að sýna merki um að stjórn yfir þeim gæti runnið úr greipum manna. Í nýrri skýrslu fyrirtækisins segir að það væri líklegast til góða ef hægt yrði á þróuninni á heimsvísu. Til þess að svo megi verða þurfi stærstu tæknifyrirtæki heims á þessu sviði að taka höndum saman.Hugmyndir Anthropic hafa verið gagnrýndar af samkeppnisaðilum sem saka Anthropic um að vilja hægja á öðrum undir yfirskini öryggis.Forsvarsmenn fyrirtækisins hyggjast leiða saman embættismenn, vísindamenn, þrýstihópa og stjórnendur annarra fyrirtækja sem sérhæfa sig í gervigreind. Markmiðið sé að finna út úr því hvernig hægt sé að hægja á þróuninni í sameini
Telja manninn geta misst stjórn á gervigreind og vilja hægja á þróun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd