Ofbeldi nær sífellt til yngri aldurshópa, segja bæði Unnar Þór Bjarnason samfélagslögreglumaður og Soffía Ámundadóttir, kennari og sérfræðingur í hegðunarvanda ungmenna, sem var umfjöllunarefni Kastljóss í kvöld.Tilkynningum um ofbeldi meðal ungmenna hefur fjölgað undanfarin ár. Í fyrra voru 188 ólögráða einstaklingar grunaðir í ofbeldismálum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Þeir hafa ekki verið fleiri í 18 ár, samkvæmt bráðabirgðatölum. Fjöldi sakborninga í fyrra er tvöfalt meiri en meðaltalið og aukning um 40 frá árinu 2024 og um 70 síðan 2023. 57 voru skráð fyrir fleiri en einu broti í fyrra og fimmtán þeirra voru skráð með fjögur eða fleiri brot það ár.Meðal verkefna samfélagslögreglu er að heimsækja félagsmiðstöðvar og fræða unglinga og börn um ýmsar birtingarmyndir ofbeldis, til